Viðburðir
Opið hús og táknmálskaffi hjá Félagi heyrnarlausra
17. October 2026 kl. 14:00 - 16:00
Félag heyrnarlausra býður öllum á opið hús og táknmálskaffi laugardaginn 17. október!
Hvort sem þú ert heyrnarlaus, heyrnarskert(ur), átt heyrnarlausan vin eða ættingja, eða ert einfaldlega forvitin(n) um íslenskt táknmál og menningu heyrnarlausra – þá ertu hjartanlega velkomin(n).
Á dagskrá:
• Stutt kynning á starfsemi félagsins
• Byrjendakennsla í nokkrum grunntáknum á íslensku táknmáli
• Kaffi, kleinur og spjall
Túlkur verður á staðnum svo allir geti tekið þátt. Frítt inn og engin skráning nauðsynleg.